31.01.19 - 13:50
Ívan Guðjón Baldursson
Sulley Muntari til Albacete (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sulley Muntari er búinn að skrifa undir samning við Albacete sem leikur í spænsku B-deildinni.
Albacete er í umspilssæti sem stendur, fimm stigum frá toppsætinu, og á Muntari að hjálpa félaginu að endurheimta sæti í efstu deild.
Muntari er 34 ára gamall miðjumaður sem gerði garðinn frægan með Portsmouth í enska boltanum áður en hann var fenginn yfir til Ítalíu, þar sem hann lék fyrir Inter og AC Milan. Hjá Inter vann Muntari ítölsku deildina, bikarinn og Meistaradeildina meðal annars.
Muntari er goðsögn í heimalandi sínu, Gana, og skoraði 20 mörk í 84 landsleikjum. Hann var partur af geysisterku liði Gana sem komst á þrjú heimsmeistaramót í röð og fór alla leið í 8-liða úrslit 2010. Þar tapaði liðið gegn Úrúgvæ eftir fræga vítaspyrnukeppni sem kom til vegna þess að Luis Suarez bjargaði marki með hendi.