31.01.19 - 20:45
Arnar Helgi Magnússon
Sunderland fær Sterling frá Tottenham (Staðfest)

Kazaiah Sterling

Mynd: Getty Images

Kazaiah Sterling

Mynd: Getty Images
Ár er síðan Tottenham keypti síðast leikmann en það var Lucas Moura sem að kom til liðsins frá PSG. Liðið virðist ekki ætla að bæta við sig leikmanni áður en að glugginn lokar á miðnætti.
Liðið hefur þó lánað frá sér nokkra leikmenn og nú hefur Kazaiah Sterling verið lánaður til Sunderland út leiktíðina.
Sterling er fæddur árið 1998 og er enskur. Hann spilar sem framherji og lék sinn fyrsta leik fyrir Totteham árið 2017 þegar hann kom inná fyrir Dele Alli í leik í Evrópudeildinni.
Sterling hefur nokkrum sinnum verið í leikmannahópi Tottenham en hefur ekki fengið nægilega marga sénsa með liðinu.
„Sterling er frábær íþróttamaður. Hann er frábær á boltanum og er með markanef. Hann hefur allt sem þarf og ég vona að dvöl hans hjá Sunderland hjálpi leikmanninum að bæta sig," segir Jack Ross, stjóri Sunderland, um komu Sterling.