31.01.19 - 20:13
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham lánar Georgiou til Levante (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nú er liðið meira en ár síðan Tottenham keypti síðast leikmann, en það var þegar Lucas Moura gekk í raðir félagsins eftir fimm ára dvöl hjá PSG.
Þetta er annar glugginn í röð sem Tottenham mistekst að fjárfesta í nýjum leikmanni en það var þó einhver hreyfing hjá félaginu í dag því Anthony Georgiou var lánaður út.
Georgiou er miðjumaður frá Kýpur sem er fæddur 1997 og hefur verið hjá Tottenham síðustu sex ár en ekki fengið nema eitt tækifæri, í 3-0 sigri gegn APOEL í Meistaradeildinni haustið 2017.
Georgiou mun leika fyrir Levante á Spáni út tímabilið. Levante er um miðja deild á Spáni, fimm stigum frá Evrópusæti og fimm stigum frá fallsæti.