31.01.19 - 14:36
Ívan Guðjón Baldursson
Tyrone Mings lánaður til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bournemouth er búið að lána bakvörðinn Tyrone Mings til Aston Villa út tímabilið.
Mings er 25 ára gamall vinstri bakvörður sem hefur aðeins komið við sögu í 20 leikjum á þremur og hálfu ári hjá Bournemouth.
Mings þótti gífurlega efnilegur og var fenginn til félagsins fyrir 8 milljónir punda eftir glæsilegt tímabil með Ipswich 2014-15.
Hann lenti í slæmum meiðslum skömmu eftir félagaskiptin, var frá í rúmt ár og hefur aldrei verið samur aftur. Vonandi nær hann að finna taktinn aftur í umspilsbaráttunni með Birki Bjarnasyni og félögum í Aston Villa.