31.01.19 - 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Udinese fær Sandro (Staðfest) - Hættir við Huddlestone

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Udinese er búið að staðfesta kaup á brasilíska miðjumanninum Sandro sem kemur til félagsins frá Genoa.
Sandro kemur á lánssamningi út tímabilið en samningnum fylgir kaupskylda næsta sumar. Udinese ætlaði að krækja í Tom Huddlestone, fyrrum samherja Sandro hjá Tottenham, en ákvað að reyna við Sandro frekar enda þremur árum yngri.
Sandro var einn af betri mönnum Benevento sem féll úr ítölsku deildinni í fyrra og skipti yfir til Genoa síðasta sumar.
Hann náði ekki að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið þrátt fyrir að koma reglulega við sögu og ákvað því að leita sér að nýju félagi.
Sandro er 29 ára og gerði garðinn frægan með Tottenham. Þá á hann 17 leiki að baki fyrir Brasilíu.