31.01.19 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
West Ham fær táning frá Benfica (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
West Ham var að staðfesta komu Mesaque Dju á frjálsri sölu frá Benfica.
Dju er 19 ára kantmaður og er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við Hamrana. Hann er uppalinn hjá Benfica og hefur spilað fyrir öll yngri landslið Portúgals frá U16 upp í U20.
Hann var partur af liði Portúgal sem vann EM U19 í fyrra og EM U17 fyrir þremur árum.
Dju mun leika með varaliði West Ham til að byrja með og er hugsaður sem framtíðarleikmaður.
Hann var partur af liði Portúgal sem vann EM U19 í fyrra og EM U17 fyrir þremur árum.
Dju mun leika með varaliði West Ham til að byrja með og er hugsaður sem framtíðarleikmaður.
