Fotbolti.net
31.01.19 - 18:09
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Wilmot til Udinese (Staðfest) - Sandro og Huddlestone á leiðinni

Wilmot til Udinese (Staðfest) - Sandro og Huddlestone á leiðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Udinese er búið að staðfesta komu varnarmannsins Ben Wilmot frá Watford. Wilmot, sem er fæddur 1999, gekk í raðir Watford frá Stevenage síðasta sumar.
Wilmot er miðvörður og hefur aðeins komið við sögu í tveimur úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu. Kaupverðið er ótilgreind en félögin eru í eigu sömu fjölskyldunnar og skipta reglulega leikmönnum á milli sín.

Miðjumennirnir Tom Huddlestone og Sandro, sem eiga gífurlega mikla reynslu úr enska boltanum að baki, eru einnig sagðir vera á leið til Udinese.

Þeir léku saman hjá Tottenham í þrjú ár frá 2010 til 2013 en Huddlestone, 32, hefur síðan þá spilað fyrir Hull City og Derby County.

Sandro er 29 ára gamall og hefur leikið fyrir Benevento og Genoa á síðustu tólf mánuðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.