31.03.19 - 18:34
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn búinn að skrifa undir hjá AIK (Staðfest)

Kolbeinn er 29 ára.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kolbeinn er 29 ára.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hefur verið kynntur sem leikmaður Svíþjóðarmeistara AIK. Félagið á tólf meistaratitla að baki.
Kolbeinn gengur í raðir félagsins á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Nantes í Frakklandi var rift.

Kolbeinn á 48 landsleiki og 23 mörk fyrir Ísland en hann var valinn í landsliðshópinn fyrir áramót. Erik Hamren landsliðsþjálfari hefur tröllatrú á Kolbeini og samningur hans við AIK gæti opnað dyr að næsta landsleikjaverkefni.
„Ég vona að hann verði klár í júní en við vitum ekki hvað gerist næst í hans málum. Ég er bjartsýnn á eitthvað gott muni koma upp hjá honum," sagði Hamren þegar hann valdi hópinn fyrir leikina gegn Andorra og Frakklandi.
Sænska úrvalsdeildin hófst í dag en AIK gerði markalaust jafntefli gegn Östersund. Kolbeinn hefur lítið spilað vegna meiðsla undanfarið tvö og hálft ár en nær sér vonandi á strik í Svíþjóð.
Hjá AIK hittir Kolbein annan Íslending, Magna Fannberg sem ráðinn var starfsmaður félagsins fyrr í þessum mánuði.

Velkomin til AIK, Kolbeinn Sigþórsson!
— AIK Fotboll (@aikfotboll) March 31, 2019
Läs mer >> https://t.co/QHkxnNjorF pic.twitter.com/XHkXm0l7Y7