Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 31. mars 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bosnich myndi ekki breyta - „Henderson of góður fyrir bekkinn"
Mynd: Getty Images
Mark Bosnich, fyrrum markvörður Manchester United og Chelsea, er á þeirri skoðun að David de Gea eigi að halda sæti sínu sem markvörður númer eitt á Old Trafford.

Umræða hefur farið í stað í kjölfar frábærs tímabils Dean Henderson á láni hjá Sheffield United. Einhverjir eru á því að Henderson eigi að taka sæti de Gea en Bosnich er ekki á sama máli.

„Henderson hefur staðið sig frábærlega og er frábær markvörður," sagði Bosnich við Goal.

„De Gea hefur samt verið stórkostlegur í lengri tíma þrátt fyrir mistök hér og þar en allir markverðir fara í gegnum slík tímabil, á því er enginn vafi. Öll atriði eru ýktari þegar þú ert hjá stærra félagi."

„Á þessari stundu myndi ég halda mig við De Gea á sama tíma er Henderson of góður fyrir bekkinn. Það væri vitleysa að halda honum og ég myndi halda áfram að lána hann burt."

„Hlutir geta samt breyst á skömmum tíma. Ég myndi halda De Gea nema ef stjarnfræðilega hátt tilboð komi í hann."

Athugasemdir
banner
banner
banner