Fotbolti.net
31.03.22 - 23:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Einn besti leikmaður sem hefur spilað í gulu og bláu"

Hann getur verið mjög sáttur við það sem hann hefur afrekað

Hann getur verið mjög sáttur við það sem hann hefur afrekað

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haukur Heiðar Hauksson lagði skóna á hilluna á dögunum eftir langvarandi baráttu við meiðsli. Haukur lék með KA, KR og AIK á sínum ferli, varð Íslands- og bikarmeistari og vann svo sænska titilinn árið 2018. Hann var hluti af íslenska landsliðshópnum sem lék á EM árið 2016.

KA-maðurinn og landsliðsmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnasonvar spurður út í Hauk Heiðar í viðtali hér á Fótbolti.net fyrr í þessari viku.
Sjá einnig:
Haukur Heiðar hættur (Staðfest) - „Hef í raun verið meiddur í fimm ár"

„Ég þekki Hauk mjög vel og sá að hann var búinn að leggja skóna á hilluna. Þessi meiðsli hafa verið ansi langvarandi. Hann getur verið mjög sáttur við það sem hann hefur afrekað. Upp á sitt besta var hann geggjaður í fótbolta, vann titla á Íslandi og í Svíþjóð og hefur spilað á hæsta „leveli"," sagði Brynjar.

„Hann var ekki bara góður leikmaður heldur líka geggjaður gæi í klefanum. Ég leit mikið upp til hans, hann var kominn með fyrirliðabandið þegar hann var nítján ára eða eitthvað og er einn besti leikmaður sem hefur spilað í gulu og bláu."

„Þegar kemur að fagmennsku og hvernig á að haga sér sem fótboltamaður hefur maður lært ýmsa hluti frá honum. Hann hefur upplifað nánast allt í þessu. Þegar hann talar um bolta þá getur maður alveg punktað niður,"
sagði Brynjar Ingi.

Haukur lék alls sjö landsleiki á ferlinum, þann fyrsta í janúar 2015. Hann lék 168 deildarleiki á ferlinum og 25 bikarleiki.

Leikirnir hefðu orðið talsvert fleiri ef Haukur hefði ekki glímt við erfið meiðsli undanfarin ár.

Haukur er þrítugur og var fyrirliði KA tímabilið 2011.
Þegar hann talar um bolta þá getur maður alveg punktað niður

Þegar hann talar um bolta þá getur maður alveg punktað niður

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.