31.05.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Nuno tekur við Wolves (Staðfest)

Nuno Espirito Santo.

Mynd: Getty Images

Nuno Espirito Santo.

Mynd: Getty Images
Wolves hefur ráðið Nuno Espirito Santo, fyrrum þjálfara Porto, sem knattspyrnustjóra.
Hinn 43 ára gamli Nuno hætti hjá Porto á dögunum eftir að hafa orðið meistari með liðinu.
Jón Daði Böðvarsson leikur með Wolves en hann er nú að fá þriðja stjóra sinn hjá félaginu.
Stjóraskipti hafa verið tíð hjá Wolves undanfarin ár en Nuno er sjöundi stjóri félagsins síðan Mick McCarthy var rekinn í febrúar árið 2012.
Walter Zenga byrjaði síðasta tímabil sem stjóri Wolves en Paul Lambert tók við af honum í nóvember. Lambert var síðan rekinn í vikunni.