Fotbolti.net
31.05.17 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

Samir Mesetovic hættur með Sindra (Staðfest)

Samir Mesetovic er hættur með Sindra

Samir Mesetovic er hættur með Sindra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ungmennafélagið Sindri tilkynnti í kvöld að stjórn knattspyrnudeildar félagsins hafi komist að samkomulagi við Samir Mesetovic um starfslok hans sem þjálfari meistaraflokks karla. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins á Facebook.
Samir tók við Sindra í október á síðasta ári en honum hefur ekki enn tekist að ná í sigur með liðið á Íslandsmótinu.

Liðið hefur gert tvö jafntefli í 2. deildinni og tapað tveimur. Þá tapaði liðið 6-1 fyrir FH í Borgunarbikarnum.

Nú hefur stjórn knattspyrnudeildar félagsins komist að samkomulagi við Samir um að hann láti af störfum.

Sindri Ragnarsson tekur við liðinu en hann hefur þjálfað hjá liðinu áður auk þess sem hann spilaði með þeim. Sindri hefur komið að þjálfun bæði í yngra flokki starfi hjá Sindra og í meistaraflokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.