Fotbolti.net
31.05.17 - 10:17
Magnús Már Einarsson

Wenger áfram með Arsenal (Staðfest)

Wenger áfram með Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsene Wenger er formlega búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Arsenal.

Engin riftunarklásúla er í samningnum en Wenger verður búinn að stýra Arsenal í 23 ár þegar samningurinn rennur út árið 2019.
Hvorki Arsenal né hinn 67 ára gamli Wenger hafa rætt um að þetta sé lokasamningur Frakkans hjá félaginu.

Wenger tók við Arsenal árið 1996 en fyrri samningur hans átti að renna út í sumar.

Arsenal varð um helgina bikarmeistari en á þessu tímabili endaði liðið í fyrsta skipti fyrir utan topp fjóra í ensku úrvalsdeildinni síðan Wenger tók við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.