Fotbolti.net
31.05.18 - 08:30
Magnús Már Einarsson

Lampard tekinn við Derby (Staðfest)

Lampard skrifar undir í morgun.

Lampard skrifar undir í morgun.

Canon

Mynd: Derby

Frank Lampard hefur verið ráðinn stjóri Derby County í ensku Championship deildinni.

Þetta er fyrsta starfið sem hinn 39 ára gamli Lampard tekur að sér en hann lagði skóna á hilluna árið 2016.

Lampard skrifaði undir þriggja ára samning við Derby en hann tekur við af Gary Rowett sem tók við Stoke í síðustu viku.

<i>„Ég hef alltaf viljað stýra félagi með mikla hefð og sögu eins og Derby County. Því er þetta risa tækifæri,\"</I> sagði Lampard.

Derby endaði í sjötta sæti í Championship deildinni á dögunum og tapaði gegn Fulham í undanúrslitum í umspili um sæti í úrvalsdeildinni.

Lampard is a Ram. 🐏 #WelcomeFrank pic.twitter.com/7q6nbiV09V

— Derby County (@dcfcofficial) May 31, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.