31.05.18 - 14:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Marco Silva tekinn við Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalinn Marco Silva er tekinn við Everton, hann er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið.
Hinn fertugi Silva tekur við Everton af Sam Allardyce sem var rekinn eftir tímabilið eftir sex mánuði í starfi.
Sjá einnig:
Stóri Sam ósáttur: Fleiri sem voru ánægðir með mig

Everton reyndi að fá Silva frá Watford síðastliðinn vetur en árangurs. Í kjölfarið var Sam ráðinn. Silva var síðan rekinn frá Watford í janúar eftir dapurt gengi.
Everton endaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýafstaðinni leiktíð. Silva á að gera betur en það og stuðningsmenn vilja sjá betri fóbolta en hjá Sam Allardyce.
„Ég veit við hverju stuðningsmenn okkar búast. Ég vil að stuðningsmenn okkar verði stoltir þegar þeir sjá lið okkar á vellinum,\" sagði Silva er gengið var frá ráðningu hans.
Silva var stjóri Sporting Lissabon og Olympiakos áður en hann kom til Englands í janúar 2017. Hann tók við Hull og var næstum því búinn að bjarga liðinu frá falli. Hann tók síðan við Watford en var rekinn þaðan í janúar eins og áður segir.
Gylfi Þór Sigurðsson er á mála hjá Everton og mun leika undir stjórn Silva á næsta tímabili. Gylfi er núna með fulla einbeitingu á Heimsmeistaramótinu með Íslandi.