Fotbolti.net
31.05.18 - 11:08
Elvar Geir Magnússon

Zidane hættur sem stjóri Real Madrid (Staðfest)

Zidane hættur sem stjóri Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Frakkinn Zinedine Zidane hefur sagt upp sem stjóri Real Madrid eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í Meistaradeildinni þriðja árið í röð.

Zidane er 45 ára og tók við Real Madrid af Rafa Benítez í janúar 2016.
Hann boðaði mjög óvænt til fréttamannafundar í dag þar sem hann tilkynnti þá ákvörðun sína að hann væri hættur sem stjóri liðsins.

Í morgun var hann á löngum fundi með forseta Madrídarliðsins, Florentino Perez.

„Þetta lið þarf að halda áfram að vinna og það þarf á breytingum að halda,\" sagði Zidane á fréttamannafundinum.

„Ég elska þetta félag en allt tekur breytingum. Real Madrid þarf nýja rödd og aðra hugmyndafræði. Þess vegna tók ég þessa ákvörðun.\"

„Ég ætla ekki að taka við nýju liði alveg strax, ég er ekki í leit að nýju félagi,\" segir Zidane sem ætlar greinilega að taka sér smá frí frá þjálfun.

Samkvæmt veðbönkum er Arsene Wenger talinn líklegastur til að taka við Madrídarliðinu en á hæla hans kemur Mauricio Pochettino.

CONFIRMED: Zidane leaves Real Madrid after winning the #UCL three years running 🏆🏆🏆 pic.twitter.com/cUakusNcDf

— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) May 31, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.