Fotbolti.net
31.05.19 - 17:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ari Freyr til KV Oostende (Staðfest)

Ari Freyr til KV Oostende (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Ari Freyr Skúlason er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við belgíska félagið KV Oostende.

Umboðsskrifstofan Total Football birtir mynd þess til sönnunar á Twitter-síðu sinni.
Ari Freyr er 32 ára gamall og spilar annað hvort sem vinstri bakvörður eða miðjumaður. Hann leikur yfirleitt sem bakvörður hjá íslenska landsliðinu.

Hann er uppalinn hjá Val en hefur leikið í Svíþjóð, Danmörku og Belgíu á atvinnumannaferli sínum. Frá 2016 hefur hann verið á mála hjá Lokeren. Hann er að verða samningslaus þar og mun þá ganga í raðir KV Oostende.

KV Oostende endaði í 14. sæti belgísku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu sem var að ljúka.

Ari Freyr á 64 landsleiki að baki fyrir Ísland. Hann er í landsliðshópnum sem var tilkynntur fyrr í dag. Smelltu hér til að skoða hópinn.

Sjá einnig:
Ari: Bjóst aldrei við að lenda í svona bulli (20. mars 2019)


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.