Fotbolti.net
31.05.19 - 08:35
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Conte ráðinn stjóri Inter (Staðfest)

Antonio Conte.

Antonio Conte.

Canon

Mynd: Getty Images

Antonio Conte hefur verið ráðinn nýr stjóri Inter og tekur við stjórnartaumunum af Luciano Spalletti sem var látinn taka pokann sinn.

Conte er 49 ára en síðasta starf hans var hjá Chelsea en hann var rekinn eftir síðasta tímabil.

Conte var tvö ár á Stamford Bridge og vann þar Englandsmeistaratitil og FA-bikar. Áður hefur hann þrívegis orðið Ítalíumeistari sem stjóri Juventus.
Inter endaði í fjórða sæti í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili og verður því með í Meistaradeildinni á komandi tímabili.

„Nú hefst nýr kafli í mínu lífi og ég er gríðarlega spenntur. Ég hef valið Inter vegna þess hvernig félag það er. Það er mikill metnaður hérna og vilji til að koma Inter aftur í fremstu röð í heiminum," segir Conte.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.