31.05.19 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Lennon skrifar undir hjá Celtic (Staðfest)

Neil Lennon.

Mynd: Getty Images

Neil Lennon.

Mynd: Getty Images
Neil Lennon, 47 ára, hefur verið opinberaður sem nýr stjóri Celtic til frambúðar. Hann tók við Brendan Rodgers í febrúar og var þá ráðinn út tímabilið.
Lennon segir að sér hafi verið boðinn lengri samningur í sturtuklefanum eftir að Celtic vann Hearts í bikarúrslitaleiknum í Skotlandi og tryggði sér þrennuna.

„Þegar mér var boðið að taka við þá sagði ég að það væri skylda mín að segja já. Celtic verður alltaf mitt félag," segir Lennon.
Lennon stýrði Celtic í fjögur ár frá 2010 til 2014 og vann deildina þrisvar og bikarinn tvisvar. Hann tók svo við Bolton í október 2014 en gekk herfilega enda skelfilegt ástand hjá félaginu.
Hann tók í kjölfarið við Hibernian í Skotlandi í júní 2016 og gerði góða hluti þar. Hann yfirgaf félagið til að taka við Celtic í vetur.