Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
banner
   fös 31. maí 2019 21:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nik: Ein mistök og þá er hausinn farinn
Kvenaboltinn
Nik Chamberlain.
Nik Chamberlain.
Mynd: Hulda Margrét
„Ég er bara vonsvikinn," sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar R., eftir svekkjandi 3-2 tap gegn ÍA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 3 -  2 Þróttur R.

Þróttur komst 2-0 yfir á fyrstu 15 mínútunum en henti því frá sér og tapaði 3-2.

„Við gerum ein mistök og þá er hausinn farinn. Við megum ekki gefa svona góðu liði tækifæri. ÍA átti sigurinn skilið, við áttum ekkert skilið eftir að þær skoruðu."

„Það vantar yfirvegun. Við komumst upp með þetta gegn Tindastóli. Í dag voru alltof margir einstaklingar inn á vellinum. Við sýndum ekki nægilega mikla baráttu eða hugrekki sem lið til að fá eitthvað út úr þessu."

Þróttur hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í deildinni.

„Fólk hefur verið að fara fram úr sér. Það eru bara þrír leikir eftir og mjög mikið eftir. Stelpurnar vita það og þær munu halda áfram. Þetta mun vekja þær."

Viðtalið er hér að ofan.
Slapp
banner