Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. maí 2020 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rodallega: Rakst oft á Rooney pissfullann og Gerrard beran að ofan
Mynd: Getty Images
Kólumbíski framherjinn Hugo Rodallega lék fyrir Wigan og Fulham frá 2009 til 2015 og kynntist enskri knattspyrnumenningu á þeim tíma.

Rodallega var í spjalli á Instagram Live og ræddi um djammtilburði helstu stjarna úrvalsdeildarinnar, þá Wayne Rooney og Steven Gerrard.

„Ef fólk bara vissi hversu oft ég rakst á Rooney pissfullann eða Gerrard dansandi beran að ofan...." sagði Rodallega.

„Það er ekkert að þessu, þeir eru mannlegir. Allir fótboltamenn fara út að drekka og skemmta sér. Ég get talið þá leikmenn sem drekka ekki á annarri hendi.

„Ég hef alltaf sagt að ég nýt þess að drekka og dansa salsa. Það er ekkert að því. Ég veit að við erum atvinnumenn en við erum mannlegir eins og allir aðrir."


Gerrard er í dag knattspyrnustjóri hjá Rangers og Rooney spilandi þjálfari hjá Derby County. Rodallega er 34 ára og spilar fyrir Denizlispor í Tyrklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner