Saul Niguez, miðjumaður Atletico Madrid, birtir athyglisverð skilaboð á samfélagsmiðlum í dag.
Hann skrifar einfaldlega: „Nýtt félag. Ég tilkynni það eftir þrjá daga." Hann gefur ekki upp fleiri upplýsingar en það, en bæði birtast skilaboðin á ensku og spænsku.
Margir velta því fyrir sér hvort að Saul sé að skipta um félagslið og tilkynni nýtt félagslið, eða hvort að þetta sé einhver auglýsingabrella.
Saul er 25 ára gamall og hefur leikið allan sinn feril með Atletico, fyrir utan tímabilið 2013/14 þegar hann var á láni hjá Rayo Vallecano. Saul hefur lengi verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni.
— Saúl Ñiguez (@saulniguez) May 31, 2020
Athugasemdir