31.07.16 - 17:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atli Freyr Ottesen lánaður í KV (Staðfest)

Atli Freyr (27) fagnar marki með Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KV hefur gengið frá lánssamningi við kantmanninn Atla Frey Ottesen, en hann kemur á láni frá Stjörnunni.
Atli er fæddur 1995 og á tíu leiki að baki með Stjörnunni í Pepsi-deildinni. Hann hefur verið á láni hjá Leikni R. fyrri part tímabils, en hann fékk ekki mikið að spila þar.

Í fyrra var hann í láni hjá Gróttu sem féll úr 1. deildinni og þá skoraði hann eitt mark í átta leikjum.
Atli Freyr mun núna spila með KV út þetta tímabil. KV var fyrir tímabilið spáð 4. sætinu í 2. deild karla, en það hefur hins vegar ekki gengið eftir. Þeir eru í augnablikinu með 16 stig í 8. sæti deildarinnar.
Atli fær leikheimild frá og með morgundeginum og má því spila með KV þegar liðið mætir Njarðvík á föstudagskvöld.