Fotbolti.net
31.07.16 - 18:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bojan Stefán Ljubicic í Fram (Staðfest)

Bojan Stefán er búinn að skipta um lið

Bojan Stefán er búinn að skipta um lið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Bojan Stefán Ljubicic er búinn að skipta yfir í Fram. Hann kemur til Safamýrarliðsins frá uppeldisfélagi sínu Keflavík.

Áður hafði verið greint frá því að Bojan væri að leita sér að nýju liði og nú er raunin orðin sú.
Hann hefur lítið fengið að spila undanfarið og fékk þess vegna að skoða aðra möguleika.

Bojan hefur leikið með Keflavík allan sinn feril. Hann er 24 ára gamall og getur leikið á miðjunni og á kantinum.

Hann er búinn að koma við sögu í sjö leikjum hjá Keflavík í Inkasso-deildinni í sumar.

Mikil leikmannavelta hefur verið hjá Fram, en liðið er í 7. sæti Inkasso-deildarinnar með 16 stig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.