Fotbolti.net
31.07.16 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Daði Ólafsson lánaður í ÍR (Staðfest)

Daði Ólafsson (hér í leik með Fylki) er kominn í ÍR

Daði Ólafsson (hér í leik með Fylki) er kominn í ÍR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR hefur fengið miðjumanninn Daða Ólafsson á láni frá Fylki út tímabilið.

Daði er fæddur árið 1994 og hann er uppalinn hjá Fylki.
Daði getur einnig leyst stöðu vinstri bakvarðar, en hann á 24 leiki að baki fyrir meistaraflokk Fylkis í deild og bikar.

Hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni á þessu tímabili, en nú mun hann færa sig um set til ÍR í Breiðholtinu. ÍR ætlar sér ekkert nema sæti í Inkasso-deildinni, en liðið er á toppi 2. deildar með fimm stigum meira en Afturelding sem er í 2. sæti.

Fylkir er í heldur meiri vandræðum. Árbæingar eru í mikilli fallbaráttu og eru í augnablikinu með 8 stig í næstneðsta sæti Pepsi-deildarinnar.





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.