31.07.16 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Erlingur Jack, Garðar Ingi og Hilmar Trausti í ÍH (Staðfest)

Hilmar Trausti er mættur aftur í Hafnarfjörðinn

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

ÍH heldur áfram að styrkja sig fyrir lokaátökin í 4. deildinni, en þrír leikmenn voru að bætast í hópinn. Þetta eru þeir Erlingur Jack Guðmundsson, Garðar Ingi Leifsson og Hilmar Trausti Arnarsson.
Erlingur Jack er reynslumikill varnarmaður sem kemur frá Þrótti Reykjavík. Hann er uppalinn hjá Þrótti og hefur lengst af spilað með félaginu. Hann hefur ekkert komið við sögu í Pepsi-deildinni í ár og mun því taka slaginn með ÍH í 4. deildinni.
Garðar Ingi Leifsson er miðjumaður, en hann er uppalinn hjá FH. Hann þekkir vel til hjá ÍH, en þetta er í þriðja skipti sem hann mun leika með félaginu. Hann kemur til liðsins frá KV, en þar var hann búinn að koma við sögu í sex leikjum í sumar.
Þriðji leikmaðurinn er svo Hilmar Trausti Arnarsson, sem uppalinn er í Haukum. Hann lék lenigi á Ásvöllum, en síðast var hann á mála hjá KA. Tufa, þjálfari KA, greindi frá því í viðtali við Fótbolta.net fyrr í þessum mánuði að Hilmar Trausti væri farinn frá félaginu. „Hann er bara farinn frá KA,“ sagði Tufa og gaf engari frekari útskýringar á því.
Þessir leikmenn bætast nú við hópinn, en auk þeirra hefur ÍH fengið Stefni Stefánsson og Þórð Jón Jóhanesson á láni frá Haukum. Þar áður var félagið svo búið að semja við Hilmar Ástþórsson og Brynjar Benediktsson.
ÍH er í harðri baráttu um sæti í 3. deild að ári, en liðið er í efsta sæti B-riðils í 4. deild karla með 22 stig.