Fotbolti.net
31.07.16 - 18:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fannar Freyr í Magna (Staðfest)

Fannar Freyr fer á láni í Magna

Fannar Freyr fer á láni í Magna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fannar Freyr Gíslason hefur verið lánaður úr HK í Magna Grenivík út þetta tímabil.

Fannar Freyr samdi við HK fyrir tímabilið, en hann hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum í Inkasso-deildinni.
Fannar Freyr er 25 ára gamall, en hann er uppalinn hjá Tindastóli. Þar lék hann sinn fyrsta meistaraflokksleik aðeins 15 ára gamall.

Það er nú búið að komast að samkomulagi um að Fannar leiki með Magna út yfirstandandi tímabil, en hann þekkir ágætlega til á Grenivík. Hann lék með liðinu árið 2013 og skoraði sjö mörk í níu leikjum eftir að hafa komið á miðju tímabili.

Lið Magna er í 4. sæti í 2. deild og ætla sér að vera með í baráttu um að komast upp í Inkasso-deildina og spila þar að ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.