31.07.16 - 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hólmbert Aron í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Framherjinn Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir Stjörnunnar frá KR. Þetta staðfesti hann sjálfur á Twitter nú rétt í þessu.
Þetta hefur legið í loftinu í nokkurn tíma og þegar KR samþykkti tilboð frá Stjörnunni í Hólmbert fyrir nokkrum dögum þá var þetta nokkuð ljóst.

Hólmbert kom til KR frá Celtic fyrir einu ári síðan. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í sumar og ekki náð að skora mark í Pepsi-deildinni.
KR keypti framherjann Jeppe Hansen frá einmitt Stjörnunni á dögunum og nú er Hólmbert farinn í hina áttina.
Hólmbert mun berjast við Guðjón Baldvinsson um stöðu í framlínunni hjá Stjörnunni.
Stjarnan er í 2. sæti Pepsi-deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði FH. Koma Hólmberts mun án efa styrkja lið Stjörnunnar fyrir baráttuna sem framundan er um Íslandsmeistaratitilinn.