31.07.16 - 17:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Josip Fucek í Víking R. (Staðfest)

Víkingur R. var að styrkja sig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. var að styrkja sig

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Króatinn Josip Fucek er genginn í raðir Víkings R. og verður löglegur með liðinu frá og með morgundeginum.
Fucek lék síðast með NK Krka í Slóveníu, en hann getur leikið allar stöðurnar fremst á vellinum. Hann lék 33 leiki á síðasta leiktímabili í slóvensku deildinni og skoraði sjö mörk.
Fucek lék síðast með NK Krka í Slóveníu, en hann getur leikið allar stöðurnar fremst á vellinum. Hann lék 33 leiki á síðasta leiktímabili í slóvensku deildinni og skoraði sjö mörk.
Fucek er annar leikmaðurinn sem Víkingur fær til sín í glugganum, en áður hafði félagið samið við Marko Perkovic, sem er einnig Króati sem hefur verið að spila í Slóveníu.
Víkingar eru í 6. sæti Pepsi-deildarinnar og þeir leika næst gegn Stjörnunni á fimmtudaginn.
Hér að neðan má sjá klippur af Fucek.
Víkingar eru í 6. sæti Pepsi-deildarinnar og þeir leika næst gegn Stjörnunni á fimmtudaginn.
Hér að neðan má sjá klippur af Fucek.
