Fotbolti.net
31.07.16 - 23:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Schalke 04 kaupir fyrirliða Sevilla (Staðfest)

Coke er mættur til Þýskalands

Coke er mættur til Þýskalands

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Schalke 04 í Þýskalandi er búið að semja við bakvörðinn Coke. Hann kemur frá Sevilla, þar sem hann var fyrirliði.

Talið er að kaupverðið sé í kringum 3 milljónir evra, en Spánverjinn gekkst undir læknisskoðun í dag.
Coke hefur verið lykilmaður hjá Sevilla síðan hann kom til liðsins árið 2011 frá Rayo Vallecano. Sevilla hefur unnið Evrópudeildina þrjú ár í röð og Coke hefur verið stór hluti í þeim sigrum.

Sevilla hefur gengið í gegnum miklar breytingar í sumar, en Jorge Sampaoli er tekinn við liðinu. Coke er nú farinn frá liðinu, en ásamt honum hafa stórir póstar eins og Grzegorz Krychowiak, Kevin Gameiro, Ciro Immobile, Ever Banega og Jose Antonio Reyes yfirgefið félagið.

Schalke endaði í 5. sæti Bundesligunnar á síðasta tímabili, en nýr þjálfari er tekinn við, hann Markus Weinzierl.

.@SevillaFC_ENG right back #Coke passed a medical with #S04 on Sunday: https://t.co/pxpCUXVMWb pic.twitter.com/FARPyKBmV1

— FC Schalke 04 (@s04_en) July 31, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.