Fotbolti.net
31.07.16 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þórður Steinar og fimm aðrir semja við KH (Staðfest)

Þórður Steinar Hreiðarsson er kominn í KH

Þórður Steinar Hreiðarsson er kominn í KH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KH, sem er á toppi D-riðilis í 4. deildinni, er búið að styrkja sig verulega fyrir komandi átök. Sex nýjir leikmenn eru búnir að semja, en þetta eru þeir Atli Páll Gylfason, Guðmundur Ragnar Vignisson, Gunnar Francis Schram, Hjörvar Hermannsson, Sveinbjörn Jónasson og Þórður Steinar Hreiðarsson.
Atli Páll er fyrrverandi leikmaður liðsins, en hann kemur aftur eftir dvöl hjá Magna á Grenivík. Hann er varnarmaður sem á 12 leiki að baki með KH.

Guðmundur Ragnar Vignisson er markvörður sem kemur frá Einherja. Hann kemur til með að fylla skarð Steinars Loga Sigurþórssonar sem farinn til Hattar.

Gunnar Francis Schram er rétt rúmlega tvítugur. Gunnar kemur frá KV en hann á enn eftir að leika meistaraflokksleik.

Hjörvar Hermannsson tekur skóna af hillunni eftir þriggja ára hlé. Hjörvar hefur spilað 87 leiki og skorað 54 mörk. Hann hefur meðal annars spilað með Víkingi Ó., Þrótti R. og Gróttu.

Sveinbjörn Jónasson kemur frá Víkingi R.. Hann lék síðast árið 2014, en þá kom hann við sögu í fjórum leikjum og skoraði eitt mark með Víkingum í Pepsi-deildinni. Sveinbjörn hefur síðan þá verið frá vegna meiðsla. Sveinbjörn varð markakóngur 1. deildar árið 2011 með 19 mörk í 21 leik. Sveinbjörn hefur leikið 212 leiki og skorað 91 mark á ferli sínum.

Þórður Steinar Hreiðarsson kemur frá Þór þar sem hann lék síðasta sumar. Þórður Steinar er varnarmaður, uppalinn Valsari, en hefur auk þess leikið með Þrótti R., Breiðabliki, Þór og nokkrum erlendum félögum, þar á meðal í Færeyjum. Þórður hefur leikið 124 leiki á íslenskri grundu og skorað 6 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.