Fotbolti.net
31.07.18 - 15:40
Arnar Daði Arnarsson

Afturelding fær til sín annan Spánverja (Staðfest)

Afturelding fagnar marki sínu í sumar.

Afturelding fagnar marki sínu í sumar.

Canon

Mynd: Raggi Óla

Sóknarmaðurinn, Joselinho hefur gengið til liðs við Aftureldingu í 2. deildinni. Joselinho kemur frá Spáni.

Afturelding er í 2. sæti 2. deildarinnar með 25 stig, jafn mörg stig og Kári sem eru í 3. sæti deildarinnar.

Joselinho er annar Spánverjinn sem Afturelding fær til sín því miðjumaðurinn, Alonso Sanchez kom til félagsins á dögunum og hefur leikið síðustu tvo leiki liðsins.
Töluverðar breytingar hafa orðið á liði Aftureldingar síðustu daga. Þeir fengu á dögunum Kristján Atla Marteinsson frá Magna.

Afturelding hefur hinsvegar lánað Valgeir Árna Svanssn í Vængi Júpíters. Þá hefur Hlynur Magnússon leikið sinn síðasta leik fyrir félagið en hann er farinn aftur í Fylki eftir að hafa verið á láni fyrri hluta sumars.

Þá eru Eiður Ívarsson, Hafliði Sigurðarson, Bjarki Ragnar Sturlaugarson og Tryggvi Magnússon allir á leið til Bandaríkjanna í skóla í byrjun ágúst. Síðasti leikur þeirra í bili verður því gegn Víði annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.