31.07.18 - 18:30
Elvar Geir Magnússon
Alexander aftur til Kára (Staðfest)

Alexander er hér fyrir miðju.

Mynd: Kári

Alexander er hér fyrir miðju.

Mynd: Kári
Alexander Már Þorláksson er aftur kominn til Kára.
Alexander er framherji, fæddur árið 1995, en hann skoraði 17 mörk í 18 leikjum fyrir Kára í 3. deildinni í fyrra. Hann skrifaði undir samning við ÍA í byrjun þessa árs en hann var kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá Kára árið 2017.
ÍA kallaði hann úr láni í maí en hann kom aðeins við sögu í þremur leikjum í Inkasso-deildinni með Skagamönnum.

Kári er í 3. sæti 2. deildarinnar og í baráttu um að komast upp en stöðuna má sjá hér að neðan.
Káramenn hafa fengið tvo aðra leikmenn frá ÍA í dag en það eru Aron Bjarki Kristjánsson og Stefán Ómar Magnússon. Sá síðarnefndi hefur leikið einn leik með ÍA í Inkasso-deildinni í sumar.