31.07.18 - 16:27
Elvar Geir Magnússon
Alfons Sampsted lánaður í Landskrona (Staðfest)

Alfons á ellefu leiki að baki með U21-landsliði Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfons Sampsted, leikmaður IFK Norrköping, hefur verið lánaður í Landskrona sem leikur í sænsku B-deildinni.
Mikill áhugi var frá liðum í Pepsi-deildinni að fá Alfons lánaðan út tímabilið en Landskrona varð fyrir valinu.
Í yfirlýsingu IFK Norrköping kom fram að liðið hafi mikla trú á Alfonsi og hafi viljað að hann yrði lánaður innan Svíþjóðar til að geta fylgst sem best með þróun hans.
Alfons er tvítugur bakvörður sem fór til Norrköping frá Breiðabliki í janúar 2017. Hann hefur spilað einn deildarleik með Norrköping á tímabilinu en ekkert komið við sögu í deildinni.
Landskrona er í 12. sæti sænsku B-deildarinnar, rétt fyrir ofan fallsæti.