31.07.18 - 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Andri Þór í Fjarðabyggð (Staðfest)

Andri Þór í leik með Fjarðabyggð.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Andri Þór í leik með Fjarðabyggð.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Andri Þór Magnússon hefur gengið til liðs við Fjarðabyggð í 2. deildinni og spilar með liðinu það sem eftir lifir sumri.
Andri Þór er uppalinn í Fjarðabyggð og hefur spilað 232 meistaraflokki fyrir félagið frá árinu 2005 og skorað í þeim leikjum heil sex mörk.
Andri Þór er uppalinn í Fjarðabyggð og hefur spilað 232 meistaraflokki fyrir félagið frá árinu 2005 og skorað í þeim leikjum heil sex mörk.
Árið 2017 spilaði Andri Þór með Gróttu í Inkasso-deildinni og fyrir tímabilið gekk hann í raðir ÍR í sömu deild. Hann yfirgaf síðan herbúðir ÍR-inga í síðustu viku.
Fjarðabyggð er í 7. sæti 2. deildarinnar aðeins fjórum stigum frá 2. sætinu og er liðið því í séns um að komast upp um deild.
Liðið mætir Hetti annað kvöld og gæti Andri Þór spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í þeim leik.