31.07.18 - 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Ýmir styrkir Selfoss út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Ýmir Pétursson mun leika fyrir Selfoss í Inkasso-deildinni út tímabilið. Hann var <a href=\"https://fotbolti.net/fullStory.php?id=258461\">lánaður til Kára</a> í síðustu viku en bauðst svo að fara á Selfoss og tók hann því.
Aron Ýmir er 28 ára hægri bakvörður. Hann kemur á lánssamning frá ÍA, sem er í toppbaráttunni í Inkasso.
Aron Ýmir hefur fengið lítinn spilatíma síðustu ár vegna meiðsla en á yfir 100 leiki að baki fyrir ÍA og Þrótt R. í efstu deildum íslenska boltans.
Aron mun styrkja Selfoss mikið en liðið hefur verið í miklu basli í sumar og er nokkuð óvænt í fallsæti sem stendur.