31.07.18 - 18:00
Arnar Daði Arnarsson
Átta leikmenn semja við Hamar (Staðfest)

Hamar hefur styrkt sig í 4. deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hamar hefur styrkt sig fyrir loka átökin í 4. deildinni með því að fá til sín átta nýja leikmenn í félagaskiptaglugganum.
Aron Bjartur Jóhannsson, Eysteinn Aron Bridde, Jón Lárus Stefánsson og Viktor Andri Reynisson koma allir til Hamars frá Selfossi.

Friðrik Örn Emilsson kemur til félagsins frá Árborg, Ísak Leó Guðmundsson frá Vængjum Júpíters, Pétur Geir Ómarsson frá Kóngunum og Sigurður Rafael Hlynsson frá Val.
Hamar er í 4. sæti A-riðils 4. deildar með 18 stig eftir tíu leiki. Þeir eru fimm stigum á eftir Ými sem er á toppi riðilsins.
Næsti leikur Hamars í 4. deildinni er í kvöld gegn KFR en KFR er á botni riðilsins.