Fotbolti.net
31.07.18 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Bamford til Leeds (Staðfest)

Patrick Bamford fagnar marki fyrir Boro.

Patrick Bamford fagnar marki fyrir Boro.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið sóknarmanninn Patrick Bamford frá Middlesbrough á um 10 milljónir punda. Bæði lið eru í Championship-deildinni.

Þessi 24 ára leikmaður skrifar undir fjögurra ára samning en hann skoraði 13 mörk í 44 leikjum fyrir Boro 2017-18.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Leeds fær í sumar en áður hafði félagið fengið markvörðinn Jamal Blackman, varnarmanninn Barry Douglas og miðjumennirnir Lewis Baker og Jack Harrison.
Bamford er fyrrum U21-landsliðsmaður Englands og gæti spilað sinn fyrsta leik á sunnudaginn þegar Leeds mætir Stoke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.