Fotbolti.net
31.07.18 - 17:39
Elvar Geir Magnússon

Breiðablik kallar Alexander Helga til baka frá Ólafsvík (Staðfest)

Alexander í leik með Víkingi Ólafsvík.

Alexander í leik með Víkingi Ólafsvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson hefur verið kallaður til baka til Breiðabliks úr láni hjá Víkingi Ólafsvík.

Það er mikill missir fyrir Ólsara að Alexander sé á förum en hann hefur verið frábær í sumar og var valinn í <a href=\"https://fotbolti.net/fullStory.php?id=258674\" target=\"_blank\">úrvalslið umferða 1-11 í Inkasso-deildinni</a>.
Einhver meiðslavandræði eru á miðju Blika og hefur félagið ákveðið að kalla Alexander til baka fyrir baráttuna framundan.

Breiðablik er í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og er aðeins einu stigi á eftir toppliðinu, Íslandsmeisturum Vals.

Ólsarar eru einnig í toppbaráttu en þeir eru í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar, með jafnmörg stig og ÍA sem er í öðru sæti og einu stigi á eftir toppliði HK.

Alexander hefur skorað þrjú mörk í tíu leikjum í Inkasso-deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.