31.07.18 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
De Laurentiis fær Bari (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bari var á dögunum lýst gjaldþrota og þarf því að byrja upp á nýtt í ítalska boltanum, eða frá D-deildinni.
Bari er sögufrægt félag sem á marga stuðningsmenn en hefur leikið í ítölsku B-deildinni undanfarin ár.
Eftir síðasta tímabil var félagið lýst gjaldþrota og eignarhald þess fært sjálfkrafa á borgarstjórann í Bari, Antonio Decaro.
Antonio fékk það hlutverk að finna verðugan eiganda fyrir félagið sem gæti komið því aftur á sömu hæðir og áður fyrr. Hann valdi einn umdeildasta og opinskásta mann innan ítalska knattspyrnuheimsins, Aurelio De Laurentiis.
De Laurentiis er eigandi Napoli og verður því annar eigandi í Serie A liðs til að vera forseti hjá tveimur félögum á Ítalíu eftir Claudio Lotito sem á Lazio og Salernitana. Gianluigi Buffon átti þá heimafélag sitt, Carrarese, þar til 2015. Sami eigandi má þó ekki eiga tvö lið í sömu deild.
De Laurentiis og Lotito voru einmitt að berjast um að vera veitt eignarhald á Bari, en De Laurentiis hafði betur.
Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem ítalskt félag er rekið í gjaldþrot, en eitt af frægari dæmunum er Parma sem komst beint upp í Serie A á þremur árum eftir gjaldþrot.