31.07.18 - 22:56
Elvar Geir Magnússon
Fjölnir kallar Anton Frey til baka úr Breiðholti (Staðfest)

Anton í leik með Fjölni á undirbúningstímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Anton Freyr Ársælsson hefur verið kallaður til Fjölnis úr láni frá Leikni.
Fjölnismenn eru í harðri fallbaráttu í Pepsi-deildinni en þeir eru stigi frá fallsæti þegar 14 umferðir eru búnar.
Anton var líka lánaður til Leiknis í fyrra en hann lék ellefu leiki með Breiðhyltingum í Inkasso-deildinni í sumar, þar á meðal í 2-2 jafnteflinu gegn Fram í kvöld.

Tveir leikmenn léku í síðasta sinn fyrir Leikni á þessu tímabili í kvöld en Daði Bærings Halldórsson er á leið aftur til Bandaríkjanna þar sem hann stundar nám.
„Já við erum orðnir frekar þunnskipaðir – en það er vonandi að við náum að sigla einum leikmanni inn fyrir lok gluggans, það er von mín en við sjáum til hvað gerist,“ sagði Vigfús Arnar Jósepsson, þjálfari Leiknis, eftir leikinn í kvöld.