31.07.18 - 16:36
Elvar Geir Magnússon
Frosinone kynnir Emil (Staðfest)

Emil er 34 ára miðjumaður og á 66 landsleiki fyrir Ísland.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nýliðar Frosinone í ítölsku A-deildinni hafa staðfest á heimasíðu sinni að Emil Hallfreðsson sé genginn í raðir félagsins.
Frosinone er fjórða félag íslenska landsliðsmannsins á Ítalíu en hann yfirgefur Udinese.

Emil á að hjálpa Frosinone að halda sér uppi. Frosinone komst fyrst upp í Seríu A árið 2015 en féll þá beinustu leið aftur niður í Seríu B.
Emil var stærstan hluta síðasta tímabils í aukahlutverki hjá Udinese og byrjaði hann aðeins átta leiki í efstu deild Ítalíu.
Hann hefur leikið með Udinese frá árinu 2016. Þar áður spilaði hann með Hellas Verona frá 2010 til 2016. Emil var einnig hjá Reggina á Ítalíu, en hann auk þess hefur hann verið á mála hjá FH, Tottenham, Malmö, Lyn í Noregi og Barnsley í Englandi.
Emil skrifar undir tveggja ára samning við Frosinone.