31.07.18 - 12:35
Arnar Daði Arnarsson
Halldór Arnarsson í ÍR (Staðfest)

Halldór er kominn aftur í ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Halldór er kominn aftur í ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Halldór Arnarsson hefur gengið til liðs við ÍR á nýjan leik eftir dvöl í Hollandi. Halldór getur því leikið með ÍR-ingum í lokaleikjum félagsins í botnbaráttu í Inkasso-deildinni sem framundan er.
Hann er uppalinn í Neðra-Breiðholtinu og lék átta leiki með félaginu í Inkasso-deildinni í fyrra.
Hann er uppalinn í Neðra-Breiðholtinu og lék átta leiki með félaginu í Inkasso-deildinni í fyrra.
Hann hefur auk þess leikið með Selfossi og Fram í 1. og Pepsi-deildinni.
ÍR-ingar eru í 10. sæti deildarinnar með 13 stig, tveimur stigum meira en Selfoss sem eru í fallsæti. Liðið mætir Þrótti annað kvöld í Laugardalnum og gæti Halldór spilað sinn fyrsta leik með ÍR á morgun.