Fotbolti.net
31.07.18 - 11:45
Arnar Daði Arnarsson

Halldór Kristinn í KB (Staðfest)

Halldór Kristinn er mættur í 4. deildina.

Halldór Kristinn er mættur í 4. deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn og fyrrum fyrirliði og aðstoðarþjálfari Leiknis í Inkasso-deildinni, Halldór Kristinn Halldórsson er mættur í 4. deildina og er kominn með leikheimild með KB.

Halldór Kristinn var spilandi aðstoðarþjálfari Leiknis á síðustu leiktíð en hætti fyrir tímabilið í sumar.
Hann hefur ákveðið að taka slaginn með KB í 4. deildinni en liðið hefur ekki safnað mörgum stigum í A-riðli deildarinnar, en liðið er með fimm stig í næst neðsta sæti deildarinnar.

Halldór, sem er þrítugur, á að baki 277 leiki á ferlinum með Leiknir R., Keflavík og Val. Hann er orðinn löglegur með KB og gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Birninum annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.