31.07.18 - 18:44
Ívan Guðjón Baldursson
Höwedes til Lokomotiv Moskvu (Staðfest)

Höwedes gerði eitt mark í þremur deildarleikjum með Juventus.

Mynd: Getty Images

Lokomotiv Moskva er búið að ganga frá kaupunum á þýska varnarmanninum Benedikt Höwedes.
Höwedes hefur leikið fyrir Schalke allan ferilinn þar til á síðasta tímabili þegar hann var lánaður til Juventus.
Höwedes fékk lítinn spilatíma hjá Ítalíumeisturunum og var ekki valinn í landsliðshóp Þjóðverja sem mistókst að komast upp úr riðli á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Hann var þó mikilvægur partur af liðinu sem varð heimsmeistari árið 2014 og á 87 landsleiki að baki, 44 fyrir A-liðið.
Höwedes á að styrkja Lokomotiv í toppbaráttu rússneska boltans. Lokomotiv vann deildina á síðasta tímabili með tveggja stiga forystu á CSKA Moskvu.
CSKA hefur ekki átt sérlega góðan félagaskiptaglugga þar sem Hörður Björgvin Magnússon er stærsta nafnið til að koma inn. Félagið er þá búið að missa tvo lykilmenn frá sér, Aleksandr Golovin og Vitinho.