Fotbolti.net
31.07.18 - 14:45
Arnar Daði Arnarsson

Jeffrey Ofori í Leikni F. (Staðfest)

Leiknismenn hafa fengið til sín leikmann.

Leiknismenn hafa fengið til sín leikmann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir F. hefur fengið til sín, hinn 22ja ára varnarmann, Jeffrey Ofori frá Danmörku.

Hann hefur til að mynda leikið með Brønshøj í dönsku B-deildinni.
Leiknir er í harðri fallbaráttu í 2. deildinni með 11 stig í 9. sæti aðeins með stigi meira en Tindastóll sem er í 11. sæti með 10 stig.

Leiknismenn mæta botnliði Hugins í botnbaráttuslag annað kvöld á Seyðisfirði og er Ofori orðinn löglegur með Leiknisliðinu fyrir þann leik. Liðið hefur ekki unnið einn leik í síðustu fjórum leikjum liðsins.

Ofori er fyrsti leikmaðurinn sem Leiknismenn fá í þessum félagaskiptaglugga en liðið missti hinsvegar Jesus Suarez til ÍR-inga í vikunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.