Fotbolti.net
31.07.18 - 21:53
Ívan Guðjón Baldursson

Jóhann Helgi aftur í Þór (Staðfest)

Jóhann Helgi aftur í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór er búið að staðfesta komu Jóhanns Helga Hannessonar aftur til félagsins eftir mislukkaða dvöl hjá Grindavík í sumar.
Jóhann Helgi var lykilmaður í liði Þórs í mörg ár áður en hann var fenginn yfir til Grindavíkur fyrir átök sumarsins í Pepsi-deildinni.

Jóhanni tókst ekki að skora í tólf leikjum með Grindavík sem er um miðja Pepsi-deildina og er búið að tapa fjórum af síðustu fimm leikjum sínum.

Þetta eru frábær tíðindi fyrir Þórsara sem eru í bullandi toppbaráttu í Inkasso-deildinni. Þór er í fjórða sæti, þremur stigum frá toppliði HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.