31.07.18 - 09:45
Elvar Geir Magnússon
Klopp notar íslenska landsliðið sem fyrirmynd

Klopp er hrifinn af Íslandi.

Mynd: Getty Images

Klopp er hrifinn af Íslandi.

Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp notar íslenska landsliðið sem fordæmi í viðtali við Goal þegar hann ræðir um hversu mikilvægt það sé að ungir heimamenn komi upp úr unglingastarfi Liverpool og í aðalliðið.
„Ég elska það þegar ungir leikmenn koma upp! Það er mikilvægt fyrir félagið,\" segir Klopp.
„Ef tækifæri er til þess þá áttu að nota það. Hversu margir búa í Liverpool? 500 þúsund? Á Íslandi búa held ég 330 þúsund svo Liverpool ætti að hafa nægilegan fólksfjölda til að búa til okkar eigið lið!\"

Klopp er greinilega hrifinn af Íslandi en hann fékk spurningu frá Magnúsi Má Einarssyni á Fótbolta.net um íslenska landsliðið á fréttamannafundi í mars á þessu ári.
„Það er eins og rætur fótboltans og rætur alls í lífinu séu þarna. Þú þarft greinilega ekki mikið af fólki heldur bara rétta fólkið til að gera stóra hluti. Ísland hefur gert ótrúlega hluti í fótboltanum. Ekki bara í fótbolta heldur líka í öðrum íþróttum. Það mætti halda að landið væri fullt af íþróttafólki en þarna eru líka læknar, kennarar og allt annað. Ég skil ekki hvernig það eru bara 330-340 þúsund íbúar þarna. Þeir hljóta að vera læknar, kennarar og atvinnumenn í fótbolta á sama tíma,\" sagði Klopp meðal annars.
Klopp hefur heimsótt Ísland en hann kom hingað í skíðaferð á síðasta ári og lýsti því sem einni skemmtilegustu lífsreynslu sinni. Þá stýrði hann Mainz gegn Keflavík í Evrópukeppninni árið 2005.