31.07.18 - 21:44
Ívan Guðjón Baldursson
Zeiko Lewis til HK út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
HK er búið að staðfesta komu Zeiko Troy Jahmiko Lewis á láni frá FH út tímabilið.
Zeiko er ungur kantmaður sem hefur skorað fjögur mörk í 14 A-landsleikjum með Bermúda. Hann kom til FH í vor en náði ekki að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
Hann var valinn af New York Red Bulls í nýliðavali bandarísku MLS deildarinnar í fyrra og skoraði tvö mörk í 22 leikjum með varaliðinu í fyrra.
Þetta eru frábær tíðindi fyrir HK sem er með tveggja stiga forystu í toppbaráttu Inkasso-deildarinnar.

Zeiko Lewis kemur frá FH á láni út leiktíðina.
— HK (@HK_Kopavogur) July 31, 2018
Bjóðum Zeiko Lewis hjartanlega velkominn í HK!
—#HKalltafHK #liðfólksins #inkasso #fotboltinet pic.twitter.com/AfApgqtWqH