31.07.18 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson
Santiago Arias til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er búið að staðfesta komu Santiago Arias frá PSV Eindhoven í Hollandi.
Arias er hægri bakvörður sem hefur verið lykilmaður hjá bæði PSV og kólumbíska landsliðinu undanfarin fjögur ár.
Arias er 26 ára og kemur fyrir 11 milljónir evra. Hann á að leysa Sime Vrsaljko, sem fór til Inter fyrr í dag, af hólmi.
Þetta er sjötti leikmaðurinn sem skrifar undir samning við Atletico í sumar eftir komu leikmanna á borð við Gelson Martins frá Sporting, Thomas Lemar frá Mónakó og Rodri frá Villarreal.